Rannsóknaverkefni
Íslenski jarðskjálftamælabankinn Loki
Samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Íslenskra Orkurannsókna. Styrkt af RANNÍS, Viðlagatryggingu, Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur.
Tilgangur verkefnisins er að koma á fót færanlegum jarðskjálftamælabanka á Íslandi til notkunar í jarðskjálftarannsóknum. Verkefnið hófst í janúar 1999.
Stjórnandi: Kristín S. Vogfjörð (VÍ).
Meðstjórnendur: Kristján Ágústsson (ÍSOR) og Bryndís Brandsdóttir (HÍ).
Nánari upplýsingar veitir heimasíða mælabankans, LOKI.
VOLUME verkefnið
Verkefni í 6. rammaáætlun Evrópubandalagsins.
Tilgangur verkefnisins er að rannsaka kvikuhreyfingar í eldfjöllum. Þetta var upphaflega þriggja ára verkefni. Það hófst 1. október 2005 en lauk vorið 2009.
Stjórnandi er Chris Bean, University College, Dublin. Hlutur Veðurstofu Íslands felst í rannsóknum á jarðskjálfta- og GPS gögnum frá Mýrdals- og Eyjafjallajökli.
Umsjónarmaður: Kristín S. Vogfjörð
Heimasíða VOLUME verkefnisins veitir nánari upplýsingar.
WEIRD verkefnið
Verkefni í 6. rammaáætlun Evrópusambandsins.
Tilgangur verkefnisins fólst í því að þróa þráðlausa samskiptatækni sem notuð verður til þess að tengja afskekkt gagnasöfnunarnet við umheiminn. Þetta var tveggja ára verkefni, það hófst 1. júní 2006 og því lauk 31. maí 2008.
Stjórnandi: Enrico Angori, DATAMAT, Róm. Hlutur Veðurstofunnar fólst í þarfagreiningu og skilgreiningu á verkefnum.
Umsjónarmaður: Kristín S. Vogfjörð
Heimasíða WEIRD verkefnisins veitir nánari upplýsingar.
SAFER verkefnið
Verkefni í 6. rammaáætlun Evrópusambandsins.
Tilgangur verkefnisins eru jarðskjálftarannsóknir og þróun aðferða til rauntímaviðvarana í stórum skjálftum í Evrópu. Verkefnið hófst 1. júlí 2006 og því mun ljúka 15. júní 2009.
Stjórnendur: Jochen Zchau, GFZ, Potsdam, og Paolo Gasparini, University of Bologna, Ítalíu.
Umsjónarmaður: Kristín S. Vogfjörð
Heimasíða SAFER verkefnisins veitir nánari upplýsingar.
TRANSFER verkefnið
Verkefni í 6. rammaáætlun Evrópusambandsins.
Tilgangur verkefnisins er að rannsaka flóðbylgjuhættu í Evrópu og bæta viðvörunarkerfi þar að lútandi. Verkefnið hófst 1. október 2006. Því mun líklega ljúka í nóvember 2009.
Stjórnandi: Stefano Tinti, University of Bologna, Ítalíu.
Umsjónarmaður: Kristín S. Vogfjörð
Heimasíða TRANSFER verkefnisins veitir nánari upplýsingar.
Lokið
Lesa má lista yfir samstarfsverkefni sem er lokið.



